top of page

Spurt og svarað

Hvað er Læsir?

Læsir er nýtt forrit sem á að einfalda skráningu og utanumhald á heimalestri nemenda.

Hvernig getur skólinn minn fengið Læsi?

Hægt er að sækja um notun á forritinu með því að óska eftir notkun eða kynningu hér.

Er Læsir öruggt forrit?

Læsir er hannað með lögum um persónuvernd í huga og er fyrst og fremst ætlað að safna upplýsingum um heimalestur. Farið er eftir þeim öryggisstöðlum sem Evrópusambandið setur og einnig eru gögnin vistuð á viðurkenndum gagnasvæðum í Evrópu.

Hverjir standa á bakvið Skólalausnir?

Skólalausnir er fyrirtæki sem stofnað var af skólafólki og forriturum með það að leiðarljósi að einfalda skólastarf. Það eru þau Atli Svein Þórarinsson (kennari), Aníta Kristjánsdóttir (forritari), Kjartan Stefánsson (kennari), Kristján Sturla Bjarnason (kennari) og Málfríður Bjarnadóttir (kennari). Öll hafa þau mikla reynslu hver á sínu sviði.

Af hverju ætti skólinn minn að nota Læsi?

Læsir er hugsaður til að einfalda skráningu á öllum heimalestri og koma í staðinn fyrir gömlu, góðu lestrarheftin. Læsir gefur kennaranum tækifæri til að eyða minni tíma í að yfirfara heimalestur þar sem hann sér strax hverjir hafa lestið og hverjir ekki. Þá getur kennari einnig séð aftur í tímann hvernig nemendur hafa staðið sig í heimalestri, gripið fyrr inn í og haft mun betri yfirsýn yfir bekkinn.

Tæknileg aðstoð

Við erum ennþá að þróa tæknilegu aðstoðina hjá okkur.

En sendu okkur endilega línu og við finnum út úr þessu með þér.

Við munum svara þér eins fljótt og við getum!

​Ábendingar eða fyrirspurnir

Takk fyrir skilaboðin

© 2023 Skólalausnir ehf.

bottom of page