LÆSIR

Leiðbeiningar fyrir forráðamenn

Hér má sjá skref fyrir skref hvernig á að hefjast handa í Læsi.

01

Sækja appið

Fyrsta skrefið er að sækja Læsir appið. Appið er fáanlegt fyrir bæði iOS og Android tæki.

Sækja appið 1
02

Nýskráning/Innskráning

Þegar appið er opnað í fyrsta sinn þá birtist þessi skjár. Ef þetta er í fyrsta sinn sem Læsir er notaður skal velja "Byrja" annars skal velja "Ég er með aðgang".

Nýskráning/Innskráning 1
03

Slá inn kóða frá kennara

Ef "Byrja" var valið þá birtist skjár þar sem þarf að slá inn 4 stafa kóða frá umsjónarkennara nemandans. Þessi kóði tengir nemandann við réttan hóp. Þegar kóðinn hefur verið sleginn inn og smellt á "Senda" mun Læsir finna hóp nemandans og sýna staðfestingu með nafni hópsins.

Slá inn kóða frá kennara 1Slá inn kóða frá kennara 2
04

Nýskrá forráðamann

Næst þarf forráðamaður að stofna aðgang í sínu nafni. Hér notar forráðamaður sitt nafn og netfang. Það eru engin takmörk á því hversu margir forráðamenn geta stofnað aðgang og skráð sig á barnið. Þannig geta til dæmis amma og afi tekið þátt í heimalestrinum.

Nýskrá forráðamann 1
05

Skrá upplýsingar um barn

Hér skal slá inn kennitölu barnsins til að tengja það við aðganginn. Ef barnið er ekki þegar skráð í kerfinu birtist næsti skjár þar sem nafn barnsins er slegið inn og kyn (valfrjálst).

Skrá upplýsingar um barn 1Skrá upplýsingar um barn 2
06

Samþykkja skilmála

Að lokum þarf að samþykkja notkunarskilmála Læsir. Lestu skilmálana vandlega áður en þú samþykkir.

Samþykkja skilmála 1
07

Beðið eftir samþykki

Nú þarf bara að bíða eftir að umsjónarkennari samþykki skráninguna. Þetta er gert til að tryggja að aðeins réttir forráðamenn fái aðgang að upplýsingum nemandans. Þegar það er klárt er hægt að hefjast handa við að skrá lestur.

Beðið eftir samþykki 1
08

Upphafsskjárinn

Upphafsskjáinn í Læsi. Hér er hægt að velja um að skrá lestur, skoða árangur, bókahillu nemandans eða vinsælustu bækur landsins. Veljið "Skrá lestur" til að byrja að skrá nýjan lestur.

Upphafsskjárinn 1
09

Skrá lestur

Þarna hefst ferlið við að skrá lestur. Hægt er að velja úr þeim bókum sem nemandinn er að lesa eða skrá nýtt lesefni.

Skrá lestur 1
10

Velja bók

Hægt er að velja bók á þrjá vegu:

Leita: Sláðu inn titil eða höfund.
ISBN númer: Notaðu myndavélina til að skanna ISBN strikamerkið aftan á bókinni eða sláðu það handvirkt inn.
Bókahilla: Veldu bók úr fellilistanum sem nemandinn er að lesa.

Einnig er hægt að skrá annað lesefni eins og sérstök hefti, tímarit, spil eða annað sem notað er við heimalesturinn.

Velja bók 1Velja bók 2
11

Mínútur og blaðsíðutal

Hér er skráð í hve margar mínútur nemandinn las. Einnig er valfrjálst að skrá inn blaðsíðutal eða hversu oft hver blaðsíða var lesin.

Mínútur og blaðsíðutal 1
12

Skrá dagsetningu

Að lokum er dagsetning skráð. Sjálfgefin dagsetning er dagurinn í dag en hægt er að velja annan dag ef lesturinn átti sér stað í gær eða fyrr. Skólarnir sjálfir stilla hversu langt aftur í tímann má skrá. Ef nemandi kláraði bókina þá skal haka við "Já, ég kláraði hana!" og bókin bætist í bókahillu nemandans.

Skrá dagsetningu 1Skrá dagsetningu 2
13

Staðfesting á skráningu

Þegar allt er tilbúið er smellt á staðfesta skráningu. Þá vistast skráningin og upplýsingarnar berast samstundis til kennarans á hans vefsvæði.

Staðfesting á skráningu 1
14

Árangurinn minn

Árangurinn minn sýnir yfirlit yfir skráningar og lestur nemandans. Þar er hægt að sjá heildarmyndina fyrir núverandi skólaár ásamt því að sjá árangur frá upphafi. Þarna má líka sjá yfirlit skráninga og límmiða sem nemandinn hefur unnið sér inn á skólaárinu.

Árangurinn minn 1
15

Hvatning

Í Læsi er lögð áhersla á fjölbreytta hvatningu. Nemendur safna m.a. eldi fyrir þá daga sem þeir hafa lesið í röð. Athugið að eldurinn núllstillist á hverju skólaári en þeir sem hafa lesið lengur geta alltaf séð líka heildareldinn sinn sem verður blár. Auk þess safna nemendur stjörnum fyrir hverja viku sem þeir klára lestrarmarkmið og svo safna þeir límmiðum fyrir sérstaka áfanga. Límmiðarnir skiptast í:

Bókamiðar: Fjöldi bóka í bókahillu.
Eldmiðar: Fjöldi daga í röð sem nemandi hefur lesið.
Stjörnumiðar: Fjöldi vikna sem nemendur hafa náð lestrarmarkmiðum.

Athugið að nemendur safna sér límmiðum fyrir hvert skólaár þannig að þó að nemandi sé t.d. kominn með bækur í bókahilluna sína fyrir síðasta skólaár þá vinnur hann sér ekki inn límmiða fyrr en hann setur fyrstu bókina í bókahilluna á þessu skólaári.

Hvatning 1Hvatning 2
16

Frá upphafi

Sýnir tölfræðilegt yfirlit frá því nemandinn byrjaði að nota Læsi.

Frá upphafi 1
17

Dagatal/Yfirlit skráninga

Undir árangurinn minn má finna dagatal þar sem hægt er að sjá yfirlit allra skráninga. Þarna er hægt að eyða skráningum eða breyta þeim ef þarf.

Dagatal/Yfirlit skráninga 1
18

Endurgjöf frá kennara

Kennarar geta sent nemendum hrós og stutta hvatningu í gegnum kerfið. Þú færð tilkynningu í appið þegar ný endurgjöf berst. Athugið að ekki er hægt að svara þessum skilaboðum í appinu.

Endurgjöf frá kennara 1
19

Bókahillan mín

Í bókahillunni er hægt að sjá allar bækur sem nemandinn hefur klárað eða er að lesa núna. Þetta er stafrænt safn yfir allan lestur og nemendur hafa oft gaman af því að sjá safnið sitt stækka.

Bókahillan mín 1
20

Vinsældalistinn

Vinsældalistinn sýnir mest lesnu bækurnar. Skiptu á milli skólans, landsins alls eða jafnaldra til að sjá hvað er vinsælast að lesa hverju sinni.

Vinsældalistinn 1
21

Fleira en eitt barn

Ef forráðamaður á fleiri en eitt barn sem notar Læsi er auðvelt að bæta þeim við. Það er gert með því að renna fingrinum til vinstri á upphafsskjánum. Þá birtist hliðarskúffa þar sem hægt er að bæta við barni og færa barn í annan hóp t.d. ef skipt er um skóla. Þarna má líka nálgast skilaboð frá kennaranum.

Fleira en eitt barn 1

Vantar þig enn aðstoð?

Ef þú lendir í vandræðum með að setja upp appið eða skrá barnið þitt, hafðu þá samband við umsjónarkennara eða sendu okkur línu í gegnum samskiptaformið á forsíðunni.