Læsir appið
LÆSIR

Einfalt skráningarforrit fyrir heimalestur

Skrunaðu niður
0
Skólar
0
Kennarar
0
Nemendur
0
Forráðamenn
Fyrir skólasamfélagið

Læsir veitir skólum faglega yfirsýn og sparar kennurum dýrmætan tíma

Við höfum hannað vettvang fyrir eitt mikilvægasta samstarfsverkefni heimila og skóla, heimalesturinn. Læsir auðveldar utanumhald, gefur kennurum rauntíma yfirsýn yfir lestrarvenjur og framfarir sinna nemenda. Stjórnendur fá jafnframt heildstæða innsýn í lestrarmenningu alls skólans, sem styður við faglega eftirfylgni. Okkar markmið er að auka skilvirkni í starfi kennara og efla fagmennsku svo meiri tími gefist í það sem skiptir máli, að hvetja, styðja og fagna lestrarárangri nemenda.

01

Stofnun hópa og umsjón

Skólar halda utan um nýskráningu starfsfólks og stofnun hópa í kerfinu. Hver hópur fær úthlutað sérstökum skráningarkóða fyrir forráðamenn. Stjórnendur hafa yfirsýn yfir alla hópa skólans.

Örugg umsjón

Stjórnendur hafa fulla yfirsýn og geta fylgst með lestri í öllum skólanum. Þeir geta raðað kennurum í rétta hópa með örfáum smellum.

Sveigjanleiki

Hægt er að bæta í hópinn öllum þeim kennurum og starfsfólki sem kemur að honum. Þannig tryggjum við sem besta samvinnu.

Stofnun hópa og umsjón
Skráning nemenda í Appi
02

Skráning nemenda í Appi

Lestrarvegferðin hefst heima. Kennarar senda foreldrum og forráðamönnum kóðann fyrir hópnum þeirra. Forráðamenn sækja appið Læsir, stofna aðgang á sínu nafni og sjá svo um að stofna nemandann í kerfinu. Þegar kennari hefur samþykkt skráninguna er hægt að hefjast handa.

Hvatning í rauntíma

Nemendur fylgjast með árangri sínum og fá fjölbreytta hvatningu: þau safna eldi fyrir hvern dag í röð sem þau lesa og límmiðum fyrir áfanga á leiðinni — til dæmis fyrstu bókina í bókahilluna eða að ná lestrarmarkmiðinu oft í röð.

Neisti
Fyrsta bókin

Snögg skráning

Það tekur innan við 20 sekúndur að skrá lestur og velja bók. Nemendur safna öllum bókum sem þeir klára í bókahillu.

Allir geta tekið þátt

Engin takmörk eru á því hve margir forráðamenn geta skráð sig á nemandann. Þannig geta amma, afi og allir þeir sem vilja tekið þátt í heimalestrinum.

03

Mælaborð kennarans

Þegar foreldrar skrá, þá uppfærist mælaborð kennara samstundis. Þeir fá samantekt á stöðu bekkjarins án þess að lyfta fingri.

Mælaborð kennarans

Sjálfvirknin

Kerfið sér um að reikna og bera saman við lestrarmarkmið skólans. Þú sérð strax hverjir þurfa aukna hvatningu.

Yfirsýn

Sjáðu „Lykiltölur“ eins og hve margir lásu heima í gær og hversu margar mínútur hópurinn hefur lesið.

04

Prófíll nemanda

Heildaryfirsýn yfir lestur hvers nemanda. Hér er hægt að skoða söguna aftur í tímann, fylgjast með framförum og sjá nákvæmlega hvaða bækur eru í lestri og hvaða bækur nemandi hefur lokið við. Kennarar geta sent nemendum endurgjöf og hvatningu.

Prófíll nemanda
Lestrarsagan

Lestrarsagan

Kennarar hafa yfirsýn yfir lestrarsögu nemenda í Læsi, óháð skólaárinu. Flytjist nemandi á milli skóla fylgja lestrarupplýsingarnar honum, svo framarlega sem báðir skólar nota kerfið.

05

Skólalestur - Allur lestur á einum stað

Læsir er ekki bara fyrir heimalestur. Kerfið býður upp á að skrá allan lestur sem á sér stað í skólanum, hvort sem það er þegar nemendur lesa fyrir kennara, yndislestur eða paralestur eins og PALS.

Skólalestur - Allur lestur á einum stað
Yndislestur
Skráðu tíma sem fer í yndislestur í bekknum.
Paralestur
Fullkomið fyrir PALS eða aðra samvinnulestrarhætti.
Hóplestur
Skráðu bækur sem lesnar eru fyrir allan hópinn.

Viltu vita meira? Við erum hér fyrir þig!

Viltu innleiða forritið í þínum skóla, panta kynningu eða vantar þig aðstoð við notkun þess? Fylltu út formið eða sendu okkur póst á skolalausnir@skolalausnir.is og teymið okkar hefur samband við fyrsta tækifæri.

skolalausnir@skolalausnir.is
Við hlökkum til að heyra frá þér!
Hvað getum við gert fyrir þig?